Kjartan Freyr fæddist í Keflavík þann 29 Júlí 2002 klukkan 11:37 hann var 3780 gr og 52 1/2 cm. Hann fæddist með mikið ljóst hár og stór blá augu.

Baltasar Þór fæddist í Keflavík með keisaraskurði 24 Júní 2008 klukkan 9:15 hann var 2805 gr og 52 cm. Hann fæddist með ljóst hár og dökk blá augu.Nokkrum dögum eftir fæðingu kom í ljós að Baltasar Þór væri með Downs heilkenni en hann er mjög hraustur og duglegur.

Aron Óðinn fæddist í Reykjavík þann 6. nóvember 2011 klukkan 20:48 hann var 3405 gr og 51 cm. Hann fæddist með mikið dökkt hár og blá augu.

Mamma mín heitir Ásdís Björk (´80) og Pabbi minn heitir Björn Kjartan (´79) við búum í keflavík því þar er best að vera .

 

Ljónið 23 Júlí - 22 Ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.

Krabbinn 22 Júní - 22 Júlí

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.



The Creed of Babies with Down Syndrome

My face might be different

But my feelings the same

I laugh and I cry

And I take pride in my gains

I was sent here among you

To teach you to love

As god in the heavens

Looks down from above

To him I'm no different

His love knows no bounds

It's those here among you

In cities and towns

That judge me by standards

That man has imparted

But this family I've chosen

Will help me get started

For I'm one of the children

So special and few

That came here to learn

The same lessons as you

That love is acceptance

It must come from the heart

We all have the same purpose

Though not the same start

The Lord gave me life

To live and embrace

And I'll do as you do

But at my own pace.